30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3444 í B-deild Alþingistíðinda. (2425)

Tilhögun þingfundar

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég vil draga athygli forseta að því að í dag er þingflokksfundadagur og ég hafði hugsað mér að boða til þingflokksfundar hjá Borgarafl. klukkan fjögur þar sem ég gerði ráð fyrir að deildarfundi yrði frestað um einhvern tíma. Ég óska eftir því að forseti bindi ekki 1. varaforseta í forsetastól því við munum hittast, hvort sem verður gefið fundarhlé eða ekki, að vörmu spori.