30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3448 í B-deild Alþingistíðinda. (2433)

196. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 460 um frv. til laga um söluskatt. Nál. er frá meiri hl. fjh.og viðskn.

„Nefndin hefur athugað frv. og mælir með því að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 390. Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að fylgja eða flytja brtt."

Undir þetta nál. rita Páll Pétursson, Kjartan Jóhannsson, Geir H. Haarde, Matthías Bjarnason og Guðmundur G. Þórarinsson.