31.12.1987
Neðri deild: 44. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

Nýársóskir í neðri deild

Forseti (Jón Kristjánsson):

Af því að þetta er síðasti fundur í þingdeildinni á þessu ári vil ég óska þingdeildarmönnum gleðilegs nýs árs og þakka samstarfið í þessari þingdeild á árinu sem nú er að líða. Þetta er, eins og fram hefur komið, óvenjulegur tími til þingfundahalda og þarf ekki að lýsa því fyrir þingdeildarmönnum, en ég þakka mönnum fyrir samstarfið þær vikur og mánuði sem liðnir eru af þinghaldinu á þessu ári og óska mönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.