05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3587 í B-deild Alþingistíðinda. (2526)

196. mál, söluskattur

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Með tilliti til yfirlýsingar hæstv. fjmrh. um að hér verði engin breyting á og áfram verði heimild í höndum fjmrh. að fella niður eða endurgreiða söluskatt af efni, vinnu, vélum og tækjum við skip og báta sem smíðuð eru innan lands tel ég ekki ástæðu til að taka þessa grein inn í lögin og segi því nei.