05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3589 í B-deild Alþingistíðinda. (2535)

196. mál, söluskattur

Páll Pétursson:

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. deildarinnar kom ekki saman til fundar. Hins vegar hafði ég munnlegt samband við þá nefndarmenn sem í kringum mig voru og þeir komust að þeirri niðurstöðu að ég sá á því að meiri hl. nefndarinnar var á einu máli um þetta og það lét ég koma í ljós. Hins vegar þykir mér hv. 4. þm. Norðurl. e. vera farinn að líta óþarflega stórt á sig ef hann telur að ég megi ekki eiga orðastað við menn öðruvísi en hann sé viðstaddur.