05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3592 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)
196. mál, söluskattur
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Eins og margsinnis hefur komið fram er Kvennalistinn algerlega andvígur þessum matarskatti. Við lögðum fram brtt. sem laut að því að undanþiggja matvæli þessum söluskatti og með tilvísan til þeirra orða sem ég viðhafði áðan við atkvæðagreiðslu um þá tillögu segi ég nei.