05.01.1988
Efri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3645 í B-deild Alþingistíðinda. (2567)

196. mál, söluskattur

Júlíus Sólnes:

Herra forseti. Hér er verið að staðfesta endanlega einhverja þá hrikalegustu aðför sem hefur verið gerð að launafólki í landinu. Við þm. Borgarafl. á hinu háa Alþingi höfum margoft ítrekað og lýst yfir mótmælum okkar gegn matarskattinum svokallaða. Því munum við greiða atkvæði gegn þessu frv. Ég segi nei.