07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3739 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)

Fréttir í Sjónvarpinu

Forseti (Jón Kristjánsson):

Í þessu sambandi vil ég geta þess að það er hlutverk forseta deildarinnar að sjá til þess að þingsköp séu haldin. Þingsköp hafa verið haldin í þessum umræðum öllum. Síðan er það túlkunaratriði bæði þm. stjórnar og stjórnarandstöðu og hefur ávallt verið svo hvort umræður eru langar eða stuttar og hvort um málþóf er að ræða. Það sýnist sitt hverjum og mun sjálfsagt verða svo meðan þing er haldið. En þingsköp hafa ekki verið brotin í þessum umræðum til þessa.