07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3741 í B-deild Alþingistíðinda. (2615)

181. mál, stjórn fiskveiða

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Með tilliti til þeirra yfirlýsinga sem sjútvrh. gaf í gær við lok þessarar umræðu þar sem hann lýsti því yfir að unnið væri að reglugerð sem mundi verða sett í þessu sambandi skv. öðrum lögum eða lögunum um samræmi á milli vinnslu og veiða tel ég ekki ástæðu til að halda við þessa till. varðandi reglugerðina, en hins vegar kemur fyrri hluti till. hér til atkvæða því það er annað mál.