07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3742 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

181. mál, stjórn fiskveiða

Kristín Einarsdóttir:

Kvennalistakonur hafa lagt til að veiðiheimildum verði úthlutað til byggðarlaga og þeim síðan falið að úthluta veiðiheimildum eftir aðstæðum á hverjum stað. Þessi till. gengur örlítið í áttina að því og þess vegna segi ég já.