07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3743 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)

181. mál, stjórn fiskveiða

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég vil taka undir það með tillögumanni um að bera upp orðið „ókeypis“ að það verði borið upp sérstaklega vegna þess að ég tel, bæði í þessu tilfelli og öðrum tilfellum, þetta er ekki einsdæmi, fráleitt að Alþingi sé að samþykkja lög sem eiga að framkvæmast á kostnað annarra en opinberra aðila.