07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3745 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)

181. mál, stjórn fiskveiða

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég er samþykkur síðari hluta tillgr., en ég vil benda hæstv. forseta á að nú hleypur í verra því deildin er fyrir nokkrum mínútum búin að fella nákvæmlega sama orðalag á þskj. 479, nákvæmlega sama. Ég ætla ekki að gera það að neinu deiluefni. Ég vil aðeins benda mönnum á að í kappinu við að drepa till. af því þær eru ekki frá mönnum sem hljóta náð hjá hinum háu herrum sem hér segja aðallega fyrir verkum hefur þessum vígamönnum sést þarna yfir.