07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3749 í B-deild Alþingistíðinda. (2656)
Afgreiðsla þingmannafrumvarpa
Forseti (Jón Kristjánsson):
Varðandi þessa umræðu vil ég taka fram að ég hef fengið í hendurnar yfirlit um stöðu þmfrv. Mér telst til að það séu 32 þmfrv. sem hafa verið lögð fram og af þeim eru þrjú sem ekki eru komin til nefndar og fjögur þmfrv. hafa verið afgreidd frá nefnd með einhverjum hætti. Varðandi þetta er náttúrulega boltinn í höndum nefndarformanna. Auðvitað munum við forsetar halda með þeim fundi um þessi mál eins og verið hefur á þinginu til þessa.