07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (2678)

181. mál, stjórn fiskveiða

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég hef áður lýst afstöðu minni til þess að ég telji allt eins eðlilegt að ráðherra skipi í þá nefnd sem hér um ræðir, en að því er efnisatriði varðar og upp eru talin í þessari till. eru þau öll í stjórnarsáttmálanum og væntanlega gulltrygg og tillagan þess vegna óþörf. Ég segi nei.