07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3784 í B-deild Alþingistíðinda. (2693)

Tilhögun þingfunda

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þess skal getið áður en hv. 4. þm. Norðurl. e., sem ekki hafði lokið sinni ræðu, hefur sitt mál um lánsfjárlög að ætlunin er að freista þess að koma því máli til nefndar á þessum degi og mun þá ekki verða um meiri fundarhöld að ræða hér í þessari deild fyrir helgi ef slíkt tekst. Hafði ég hugsað mér, ef þessari umræðu verður ekki lokið fyrir kvöldmat, að gefa kvöldmatarhlé í tvo tíma og hefja fund aftur kl. 9.