07.01.1988
Efri deild: 51. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3862 í B-deild Alþingistíðinda. (2722)

181. mál, stjórn fiskveiða

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls lögðum við kvennalistakonur fram brtt. sem fela í sér hugmyndir sem fela í sér grundvallarbreytingar á því frv. til laga sem hér liggur fyrir og er til atkvæðagreiðslu. Hugmyndum okkar hefur verið hafnað og brtt. allar felldar. Þar af leiðandi getum við ekki tekið þátt í að styðja þetta frv. og því segi ég nei.