14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4059 í B-deild Alþingistíðinda. (2840)

222. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að það er skynsamlegt að hafa fleiri en eina mælingaraðferð á þróun framfærslukostnaðar, en ástæðan fyrir fyrirspurninni og þessum umræðum nú er sú að ef svo heldur fram sem horfir með verðlag og kjaraþróun á þessu ári getur reynst óhjákvæmilegt að binda launahreyfingar við vísitölu eins og áður var gert vegna þess hvað verðbólgan er komin á mikið span fyrir tilverknað efnahagsstefnu hæstv. ríkisstjórnar.