01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4089 í B-deild Alþingistíðinda. (2870)
165. mál, Vesturlandsvegur
Albert Guðmundsson:
Forseti. Ég kem eiginlega til að benda hv. 4. þm. Reykn. á að ég reikna með að sami háttur sé í flestum þingflokkum að þegar þáltill. eins og hér er flutt er flutt í sameiningu af þm. allra flokka eða heils kjördæmis hljóti hún stuðning þingflokks. A.m.k. var þannig að staðið í Borgarafl. að sá flm., Ingi Björn Albertsson, lagði það fyrir þingflokkinn að hann yrði þarna meðflm. og tryggði sér samstöðu þingflokksins. Þannig er ekki þörf á því að allir þm. Borgarafl. standi upp og lýsi samþykkt sinni með því sem hér er lagt til að gert verði. Ég vona að það sé ekki þannig að hann sé að pína upp alla þm. til að lýsa samstöðu sinni með þessari tiltölulega einföldu tillögu þar sem Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram nauðsynlegar kannanir á ákveðnum verkefnum. Það er svo algengt að svona tillögur séu fluttar. En með þessu er ég að undirstrika að þátttaka þm. Borgarafl. á þessari till. þýðir að þm. Borgarafl. eru sammála henni og þurfa ekki allir að standa upp til að lýsa samstöðu sinni.
En ég vil líka benda á að síst af öllu vil ég taka undir að hv. 8. þm. Reykv. sé eitthvert séní í fjármálum yfirleitt, hvað þá einhver allsherjarheili Alþingis á þeim sviðum. Ég hlustaði ekki á hans ræðu, en mér þykir ótrúlegt og smekkleysi ef hann hefur ekki tekið fram að fjármögnun á hringveginum svokallaða og fullkomnun hans í það ástand sem hann var þegar hann var opnaður var tillaga Jónasar Péturssonar þm. Sjálfstfl. á sínum tíma. (EKJ: Ég tók fram um Skeiðarársand að þetta hefði verið gert. Þú átt að hlusta á ræðurnar.) Ég vil nefna hér nafn Jónasar Péturssonar vegna þess að ef sú framkvæmd er dregin inn í umræður á Alþingi án þess að hans nafn komi þar við sögu þykir mér það smekkleysi.
En ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þessa tillögu. Hún er sjálfsögð, að láta fara fram þá könnun sem þar er gert ráð fyrir. Við borgaraflokksþm. stöndum að því.