09.02.1988
Neðri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4408 í B-deild Alþingistíðinda. (3040)

205. mál, lánskjör og ávöxtun sparifjár

Forseti (Jón Kristjánsson):

Það var ætlunin að halda þessum fundi áfram til klukkan fimm í dag. Nú hafa bæst við þrír á mælendaskrá þannig að sýnt er að þessari umræðu lýkur ekki í dag, en við munum halda áfram til klukkan fimm ef hv. 6. þm. Norðurl. e. kýs að hefja sína ræðu eða telur að hann ljúki henni á þeim tíma sem til umráða er.