11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4466 í B-deild Alþingistíðinda. (3091)
249. mál, húsnæðismál á landsbyggðinni
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég vil aðeins vegna orða síðasta ræðumanns láta það koma fram, af því að mér fannst hann tengja það kaupleiguíbúðum að það væri ekki eingöngu lausn að byggja félagslegt íbúðarhúsnæði, að í frv. um kaupleiguíbúðir er einnig gert ráð fyrir kaupleiguíbúðum í almenna kerfinu og það er einmitt með hliðsjón af vanda landsbyggðarinnar sem það er einnig gert ráð fyrir kaupleiguíbúðum í almenna kerfinu sem ekki yrði háð tekjumörkum eins og í félagslega kerfinu. Af þessu gefna tilefni taldi ég ástæðu til að láta það koma hér fram.