28.10.1987
Neðri deild: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (310)
34. mál, aðför
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. sem liggur fyrir um breytingu á aðfararlögum er nú flutt, eins og fram kom, öðru sinni af hv. 1. þm. Reykv., en það varð ekki útrætt á síðasta þingi.
Það fer ekki milli mála að hér er hreyft þörfu máli. Frv. felur í sér einföldun á framkvæmd réttarfars ef að lögum yrði. En þegar frv. er lesið verður ekki séð að flm. hafi tekið mið af meðferð þess á síðasta Alþingi. Frv. var þá vísað til allshn. Nd. sem sendi það til umsagnar ýmissa aðila. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis bárust umsagnir frá réttarfarsnefnd, Neytendasamtökunum, Dómarafélagi Íslands, Lögmannafélagi Íslands og Sýslumannafélagi Íslands.
Í ítarlegri umsögn réttarfarsnefndar kom fram að um væri að ræða ákjósanlega breytingu á 33. gr. aðfararlaganna, þ.e. að heimila fógeta að boða dómfellda til framkvæmdar á aðfararaðgerð í sinni starfsstöð. Á frv. væru hins vegar annmarkar sem nauðsynlegt væri að bæta úr.
Réttarfarsnefnd samdi tillögur um þetta efni og fela þær í sér breytingar á þremur öðrum greinum aðfararlaganna en þeirrar sem frv. fjallar um, þ.e. breytingar á 25. gr., 34. gr. og 45. gr.
Í umsögn Lögmannafélagsins kom fram að stjórn þess og laganefnd væri samþykk þessum tillögum réttarfarsnefndar. Þar kom einnig fram það sjónarmið að vænlegra væri til réttarbóta að í stað sundurlausra breytinga á einstökum greinum aðfararlaganna færi fram heildarendurskoðun á þeim.
Í umsögnum stjórna Dómarafélagsins og Sýslumannafélagsins kom og fram það sjónarmið að fram þurfi að fara heildarendurskoðun aðfararlaga frá 1887 og einnig laga um lögtak og fjárnám án undangengins dóms eða sáttar frá árinu 1885. Frv., sem nú er til umræðu, var sem kunnugt er ekki afgreitt frá þingnefnd á síðasta þingi og dómsmrn. voru því ekki kynntar þá þessar umsagnir og athugasemdir. Hins vegar barst ráðuneytinu bréf frá Dómarafélagi Íslands 28. jan. 1987 þar sem stjórnin lagði til að fram færi heildarendurskoðun á aðfararlögum. Þetta bréf var sent réttarfarsnefnd til athugunar og umsagnar í apríl sl.
Ég vil taka það skýrt fram að ég tel rétt að hin gömlu aðfararlög, sem, eins og flm. þessa frv. benti á, eiga einmitt aldarafmæli þessa dagana, verði tekin til endurskoðunar. Ég mun fela réttarfarsnefnd það verk. Sú endurskoðun mun hins vegar óhjákvæmilega taka nokkurn tíma. Eins og hv. flm. tel ég ekki rétt að slík endurskoðun tefji þær breytingar á aðfararlögunum sem hér er gerð tillaga um, en að teknu tilliti til umsagnar réttarfarsnefndar og tillagna. Ég mun koma þeim tillögum á framfæri við þingnefndina sem um málið fjallar og legg til eins og flm. að nefndin taki það mál til meðferðar.