11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4474 í B-deild Alþingistíðinda. (3103)

253. mál, vörugjald á búrnet til loðdýraræktar

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Framkvæmd þessarar tillögu um endurgreiðslu er í þessu tilviki ákaflega einföld þar sem innflutningsaðilar eru einungis þrír talsins. Þetta verður gert með einföldu bréfi til tollyfirvalda við þessa afgreiðslu og á ekki að kalla á neina umfalsverða skriffinnsku sem gæti orðið til óþæginda.