15.02.1988
Sameinað þing: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4545 í B-deild Alþingistíðinda. (3151)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hafa borist tvö erindi, annars vegar kjörbréf Jóns Braga Bjarnasonar, 2. varamanns Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi, en hann tæki sæti 5. þm. Reykv., hæstv. fjmrh. Jóns Baldvins Hannibalssonar, og hins vegar kjörbréf Ragnars Óskarssonar, 1. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, en hann tæki sæti hv. 4. þm. Suðurl. Margrétar Frímannsdóttur.

Kjörbréfanefnd hefur athugað þessi kjörbréf og leggur til að þau verði samþykkt.