23.02.1988
Neðri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4791 í B-deild Alþingistíðinda. (3294)
293. mál, áfengislög
Guðrún Helgadóttir:
Ég tel mér skylt vegna þeirra orða sem hv. 2. þm. Vestf. hafði um jólaleyfi mitt að segja að það er alveg rétt að ég var beinlínis tilneydd til þess að fara að minni eigin skipulagningu á jólaleyfi og var því ekki hér á milli jóla og nýárs. Ég hafði nefnilega reiknað með einhverri skipulagningu á vinnubrögðum þingsins og treysti því að ég gæti farið úr landi til að hitta börn mín fjögur 22. des. Svo reyndist hins vegar ekki vera fyrir tilstilli þeirrar ríkisstjórnar sem hv. 2. þm. Vestf. styður og hann mótmælti á engan hátt þessum vinnubrögðum. Þetta vil ég að komi fram. Ég harmaði þetta satt að segja vegna þess að það er ekki minn vandi að sitja ekki þingfundi og stunda mitt starf hér, en ég hygg að hv. forseti og þingheimur skilji að þegar búið er að kaupa svokallaðan Apex-flugmiða með margra vikna fyrirvara er afskaplega erfitt að snúa því við. Þyrftu laun þingmanna að hækka verulega til þess að þeir hafi efni á því að henda slíku í ruslakörfuna. Þetta vil ég einfaldlega að komi fram svo ég verði ekki ásökuð um að hafa vísvitandi skrópað frá vinnu minni hér, en í þetta skipti fór skipulagning úr öllum böndum og þess vegna minntist ég á þetta þegar verið er að tala um smámuni eins og þá sem tímasetning þessa fundar er.