23.02.1988
Neðri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4792 í B-deild Alþingistíðinda. (3296)
293. mál, áfengislög
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Þessar umræður eru allt að því að svæfa mig sem þm. Ég bið afsökunar á því að trufla heimiliserjur stjórnarliða og harma að einn stjórnarandstæðingur skuli blanda sér inn í þær. En ástæðan fyrir því að ég kem hingað eru ósanngjörn orð sem hafa fallið í garð forseta. Ég lýsi fullu trausti á forseta og tel að hann hafi gegnt starfi sínu á þann hátt að þm. geti vel við unað. Sem þm. lít ég á forseta sem forseta okkar allra og tel þau orð sem féllu í hans garð ómakleg.