29.10.1987
Sameinað þing: 10. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
Sala fiskiskipa frá Suðurnesjum
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Þessi umræða er aðeins forskot á þá miklu umræðu og umfjöllun sem á eftir að fara fram á þinginu innan skamms um fiskveiðistefnu næstu ára. En það er einmitt fiskveiðistefna síðustu ára, kvótakerfið svokallaða, sem er meginorsök vandans á Suðurnesjum og skipasölumála þar. Vandinn á að vísu rætur að rekja lengra aftur í tímann þegar gífurleg uppbygging átti sér stað í sjávarútvegi út um alla landsbyggðina með stuðningi stjórnvalda í formi lánafyrirgreiðslu og hagstæðra kjara. Þeirrar fyrirgreiðslu fengu Suðurnesjabyggðir ekki að njóta. Byggðastefna þeirra tíma náði ekki til Suðurnesja. Þau drógust aftur úr í uppbyggingu og viðhaldi í útgerð og fiskvinnslu og voru þar af leiðandi vanbúin til að mæta afleiðingum kvótakerfis og breyttra aðstæðna í fiskvinnslu. Þetta kemur fram í háum meðalaldri skipa og hvers konar tækja í fiskvinnslunni. Ástandið er vægast sagt alvarlegt og hefur farið versnandi.
Fyrir tveimur árum stóðum við hér og ræddum stjórn fiskveiða sem þá var mótuð með lögum til tveggja ára. Þá ræddi ég sérstaklega áhrif kvótakerfisins á atvinnuástand og afkomuöryggi einstakra byggðarlaga. Þá sem nú voru Suðurnesin sérstaklega í brennidepli. Ég andmælti því þá að í frv. til laga um stjórnun fiskveiða væri ekki tekið á þeim vanda sem skapast við það að skip eru seld á milli landshluta og flytja með sér aflakvóta. Ég lýsti þeirri skoðun minni að svo mætti búa um hnútana að seld skip færu a.m.k. ekki með allan kvótann úr byggðarlaginu. Á þetta var ekki hlustað. Markaðslögmálin voru sett ofar öllu og m.a.s. búið svo um hnúta að útgerðarmenn á öðrum helmingi landsins geta aukið kvóta sinn með því að kaupa skip af hinum helmingnum.
Á þessu verður að taka við mótun fiskveiðistefnu næstu ára. Suðurnesjafólk hefur risið upp til varnar gegn þessari skipasöluvá sem er nánast á við náttúruhamfarir þar suður frá. Það er hörmulegt að einmitt núna þegar verið er að snúa vörn í sókn skuli skammtímaviðskiptafræði stuðla að brottflutningi atvinnutækjanna af svæðinu.