03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5417 í B-deild Alþingistíðinda. (3622)
298. mál, einkaleyfi og mynsturvernd
Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessi greinargóðu svör. Ég átti von á því að fyrir þetta þing yrði lagt frv. til l. um einkaleyfi. Samkvæmt fskj. er fylgdi með stefnuræðu forsrh. var slíkt frv. boðað, en samkvæmt þeim upplýsingum sem við fáum nú kemur nefndin til með að skila af sér í október svo að það getur ekki orðið að það frv. verði lagt fyrir þetta þing.
Hvað varðar mynsturverndina hefur verið samið mjög greinargott frv. og það bíður framlagningar að ég tel. Flestir aðilar eru búnir að samþykkja það, sem þessi mál varða, og vil ég því skora hér á hæstv. iðnrh. að leggja frv. fram, a.m.k. til kynningar.
Það kom fram í ræðu hæstv. iðnrh. að mikill vilji væri hjá honum til að laga þessa hluti og tel ég það vel. Alla vega skildi ég ekki ræðu hans öðruvísi. Á þessu sviði, sviði hugverkaréttar, er mörg brotalömin og þá sérstaklega um samskipti uppfinningamannsins og síðan framleiðandans og líka milli framleiðenda innbyrðis.
Þau lög sem nú eru í gildi þjóna ekki nema að takmörkuðu leyti þeim tilgangi að verja hugvitsmanninn og þaðan af síður tvo framleiðendur fyrir því að framleiða sömu vöruna samkvæmt sömu uppfinningunni.
Ég vil að lokum þakka þessi svör en skora á hæstv. iðnrh. að flýta þessum málum svo að þeir menn sem vinna á þessu sviði þurfi ekki að bíða öllu lengur eftir því að réttindi þeirra verði varin.