09.03.1988
Efri deild: 67. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5608 í B-deild Alþingistíðinda. (3740)

243. mál, aðgerðir í sjávarútvegi

Frsm. sjútvn. (Guðmundur H. Garðarsson):

Hæstv. forseti. Sjútvn. hefur fjallað um frv. á einum fundi og fékk til sín Árna Kolbeinsson ráðuneytisstjóra sem gerði grein fyrir einstökum atriðum málsins. Mælir nefndin með samþykkt frv., en einn nefndarmanna, Skúli Alexandersson, ritaði undir með fyrirvara.