10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5655 í B-deild Alþingistíðinda. (3792)
289. mál, mat á heimilisstörfum
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka þátt í þessari umræðu, en orð hafa fallið á þá leið að ég sá ástæðu til að kveðja mér hljóðs.
Ég vil taka fram að sú till., sem hér var mælt fyrir og hér er til umræðu, um mat á heimilisstörfum, er góðra gjalda verð og aldrei of mikið að því gert að draga fram staðreyndir eins og kostur er um gildi þessara starfa. Ég held hins vegar að það sé nauðsynlegt, jafnt fyrir konur sem karla hér á Alþingi og í þjóðfélaginu almennt, að átta sig á þeirri hraklegu stöðu sem konur í landinu almennt búa við hvort sem þær vinna á heimilum eða úti á vinnumarkaði. Mér þótti í máli hv. 1. flm. þessarar till. gæta dálítils hroka í þessum efnum, ég held ég verði að orða það þannig, þar sem hann var að tala um að þetta væri allt í lagi hjá karlpeningnum, bæði á Alþingi og annars staðar. Þar væri ekkert vanmat á heimilisstörfum og blessuðum mæðrum okkar og formæðrum. En ég held að málin stæðu kannski svolítið öðruvísi í þjóðfélaginu ef þarna væri innistæða fyrir þeim yfirlýsingum sem fram komu hjá hv. formanni Borgarafl. Þá held ég að menn þyrftu ekki að horfa á tölulegar upplýsingar um launamun kynjanna í landinu, sem liggja fyrir, og um það vanmat sem er á framlagi kvenna jafnt á vinnumarkaði sem inni á heimilum í samanburði við karla.
Af hverju heldur hv. formaður Borgarafl. að Kvennalistinn t.d. safni til sín fylgi í landinu? Vegna þess að sú fylking er að mæla fyrir réttarbótum konum til handa og það fær hljómgrunn vegna þess að misréttið er jafnmikið og raun ber vitni. (AG: Veit hv. þm. að ég er búinn að tala mig dauðan. Hann er að slá undir belti samkvæmt því.) Nú, ég hafði nú ekki áttað mig á því, en ég treysti því að hv. þm. Albert Guðmundsson geti komið að þessu máli í öðru samhengi. (Forseti: Það er rétt sem hv. 5. þm. Reykv. sagði. Hann getur ekki talað oftar í þessari umræðu.) Já, já. Ég skal ekki bera fram ádeilur á hv. 1. flm. Ég er í rauninni aðeins að vekja athygli á því sem liggur að baki orða hans og reyndar fannst mér ósköp svipaður tónn uppi hjá hv. 1. þm. Reykn. sem talaði áðan.
Ég vil aðeins láta það koma fram að ég get ekki deilt þessum viðhorfum. Ég tel að menn þyrftu í rauninni að átta sig hér á Alþingi á alvöru þessa máls, allir sem vilja færa mál til betra horfs í þessu þjóðfélagi út frá sjónarmiðum jöfnuðar, og það mundi margt lagast í þjóðfélaginu ef við það væri staðið í reynd. Þá mundi margt lagast í þessu samfélagi okkar.