14.03.1988
Sameinað þing: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5732 í B-deild Alþingistíðinda. (3863)
331. mál, störf og starfshættir umboðsmanns Alþingis
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Það hefur komið fram, bæði hjá hv. 9. þm. Reykn. og eins hjá frummælanda, hæstv. forseta Sþ., að þeir vonist til þess að umræðurnar, sem hér fara fram, veiki ekki traust og virðingu þess embættismanns sem um er að ræða, umboðsmanns Alþingis. Ég vona að það sé ekki ætlun þeirra að það séu til einhver mál þess eðlis að ef umræður fara fram á Alþingi um málið veiki það traust á einhverjum ákveðnum embættismönnum. Ég mótmæli því.
Hitt er annað mál að hv. 11. þm. Reykv. gat þess að það mætti vera meira vald á ákveðnum sviðum, sem umboðsmaður Alþingis hefur ekki samkvæmt þessum reglum eða lögum, aðallega reglunum sem á að fara að setja, á réttum stað fyrir einstaklinginn sem er í vanda hverju sinni við kerfið.