03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (388)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Ásmundar Stefánssonar sem er 1. varamaður Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi. Nefndin sér ekkert athugavert við kjörbréfið og var sammála um að leggja til að það verði samþykkt.