17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5845 í B-deild Alþingistíðinda. (3945)
292. mál, stjórn Ísraelsmanna á herteknum svæðum
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Lítil aukaspurning til hæstv. utanrrh. og helst hefði ég kosið að hæstv. samstarfsráðherra, samgrh., hefði verið viðstaddur líka: Getum við þingfulltrúar í Norðurlandaráði verið örugg um að í þeim átökum sem nú eiga sér stað á vesturbakkanum séu ekki notuð vopn sem framleidd eru á Norðurlöndum fyrir lán frá Norræna fjárfestingarbankanum?