17.03.1988
Sameinað þing: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5889 í B-deild Alþingistíðinda. (4012)
358. mál, hálendisvegir
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki taka langan tíma, aðeins að leiðrétta það sem hér var haldið fram um að það væru ákveðnir þm. sem kæmu því ekki fyrir í huga sínum að hugsa lengur en í kjörtímabilum. Mér fannst einhvern veginn að því væri beint til mín. Ekki vil ég taka undir það en ég get ekki almennilega áttað mig á því hvernig hv. frsm. hugsar og hvernig hann túlkaði mína afstöðu í þessu máli á þann hátt að ég væri að einhverju leyti að leggjast gegn tillögugreinunum vegna þess að ég tók það fram alveg sérstaklega í upphafi að ég gæti vel fallist á tillgr. og liti svo á að þær væru að vissu leyti tímabærar þó að ég hafi kannski skipt um skoðun núna eftir að hafa hlustað á seinni ræðu hans.
Aftur á móti var málflutningurinn sem fylgdi á eftir, þar sem það var boðað að að þessari till. samþykktri skyldi brjóta upp hið hefðbundna samgöngukerfi sem við búum við fyrst og fremst, það sem ég var að mótmæla. Mér finnst endilega að hv. ræðumaður hafi verið að halda svipuðum skoðunum fram og ég gerði hér, þ.e. að við ætluðum ekki að styrkja sérstaklega þennan samgönguskurðpunkt sem liggur hér um suðvesturhornið. Það erum við fyrst og fremst að gera með því að brjóta upp það samgöngumunstur sem við búum við núna. Menn verða að gera sér grein fyrir því hvað mundi gerast ef fullkominn vegur yrði byggður yfir hálendið áður en búið er að byggja upp almennilegt samgöngunet eftir hringveginum og út frá honum, að meginþungi samgangnanna milli Austur- og Norðurlands mundi vitaskuld liggja yfir þetta hálendi og jafnvel meginhluti Austfjarðasamgangna. Hann færi að verða næstum því óþarfur vegurinn okkar um Skeiðarársand eftir það.
Í öðru lagi vil ég á engan veg jafna þessari till. eða þeim hugmyndum sem hafa komið fram hjá ræðumönnum í tengslum við hana við það þó að verið sé að ræða um að gera jarðgöng á milli byggða hvort sem það er á Austfjörðum, Vestfjörðum eða Norðurlandi eða göng undir Hvalfjörð. Það er alls staðar verið að stytta og efla hringveginn og verið að tryggja það samgöngukerfi, sem við búum við, betur í sessi.
Og að lokum þetta: Málflutningur flm. var á þann veg að þetta væri verkefni sem skyldi gengið í sem fyrst. En svo þegar flm. segir að honum hafi fundist hv. 3. þm. Vesturl. vera heldur bjartsýnn að tala um að þetta yrði ekki gert á næsta áratug fer ég nú að verða á þeirri skoðun að tillgr., umræðan og allt saman sé langt á undan tímanum, alls ekki tímabær hér á hv. Alþingi.