22.03.1988
Neðri deild: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6003 í B-deild Alþingistíðinda. (4076)
100. mál, sjóðir og stofnanir
Frsm. allshn. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti allshn. á frv. til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Nál. er á þskj. 713.
Nefndin leggur einróma til að frv. verði samþykkt með tveimur breytingum sem hún flytur á þskj. 714. Ég vil aðeins rifja upp að þetta frv. er flutt vegna þess að það hefur þótt skorta samræmda löggjöf um þetta efni, en reikningslegt eftirlit hefur þó verið viðhaft af opinberri hálfu, þ.e. Ríkisendurskoðunar.
Þessu frv. er ætlað að taka á þeim vanda sem fylgir því að ekki er samræmd löggjöf fyrir hendi þegar við stofnun sjóðs eða á síðari stigum ef þarf.
Brtt. sem nefndin flytur eru tvær eins og ég sagði. Í fyrsta lagi við 2. gr. þar sem lagt er til að í stað „50 000 kr.“ komi: 300 000 kr., þ.e. „að stofnfé sjóðs eða stofnunar skal vera 300 000 kr. hið minnsta miðað við lánskjaravísitölu þá sem í gildi er við gildistöku laganna og breytist síðan árlega í samræmi við vísitölu í janúarmánuði“. Það er því lögð til þarna breyting á lágmarksupphæðinni.
Síðari brtt. er við 4. gr., lok 1. málsgr., þar sem aðeins er breytt orðalagi en ekki efnisatriðum máls. Málsliðurinn mundi þá orðast svo: „Skal lögreglustjóri hafa fjárvörsluna á hendi þar til dómsmrh. hefur skipað málum á annan veg.“
Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð, herra forseti, en ítreka að nefndin leggur einróma til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum.