23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6083 í B-deild Alþingistíðinda. (4145)

293. mál, áfengislög

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Sú er óbifanleg skoðun mín að gott og heilbrigt þjóðfélag eigi að byggjast á því að sérhver heilbrigður einstaklingur beri ábyrgð á eigin lífi að hann verði að axla þá ábyrgð að velja og hafna. Þann bikar hvorki vil ég né tel rétt að taka frá öðru fólki. Enn síður get ég tekið þátt í því að einungis forréttindahópar eigi aðgang að lífsgæðum sem allur þorri manna á engan aðgang að. Vinni hv. alþm. að því að byggja hollt og heilbrigt samfélag af alvöru og í einlægni svo að þetta land verði góður verustaður treysti ég landsmönnum til að fara með áfengt öl af meira viti en þeir fara með sterkara áfengi nú. Það væri verðugra verkefni hv. alþm. að vinna að þessu samfélagi en að taka af landsmönnum ábyrgð á eigin lífi með boðum og bönnum. Ég segi já.