23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6084 í B-deild Alþingistíðinda. (4150)

293. mál, áfengislög

Óli Þ. Guðbjartsson:

Hæstv. forseti. Samþykkt þessa lagafrv. mun að minni hyggju auka á óreglu og vanda, einkum ungs fólks, auka kostnað við heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu og trúlega fjölga umferðarslysum. Samþykkt þess stuðlar því ekki að auknu frelsi og almannaheill heldur þveröfugt. Því segi ég nei.