23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6085 í B-deild Alþingistíðinda. (4155)

293. mál, áfengislög

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Áfengisvandamál í landi okkar fer því miður sívaxandi. Engin heildarstefna hefur verið mörkuð í áfengismálum hér á landi. Forvarnastarf er lítið sem ekkert. Samþykkt þessa frv. um bjór mun því stórauka vandann. Þess vegna segi ég stórt nei.