24.03.1988
Sameinað þing: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6085 í B-deild Alþingistíðinda. (4157)
310. mál, skortur á hjúkrunarfræðingum
Margrét Frímannsdóttir:
Herra forseti. Á þskj. 616 hefur Ragnar Óskarsson, varaþm. Alþb. á Suðurl., lagt fram fsp. til heilbrrh. um það hvort heilbrrh. hafi einhver áform um að grípa til ráðstafana til að bæta úr skorti á hjúkrunarfræðingum víða um land. En varamaður minn skildi ekki bara eftir þessa fsp. handa mér. Ég fékk líka í arf þá grg. með fsp. sem ég les nú, með leyfi forseta:
Nú um nokkurn tíma hefur borið á því að erfitt er að fá hjúkrunarfræðinga til starfa við sjúkrahús og heilsugæslustöðvar. Slíkt ástand er alvarlegt, enda ein grundvallarforsenda þess að halda megi uppi góðu heilbrigðiskerfi að jafnan sé tryggt að innan þess sé nægilegur starfskraftur til að sinna öllum þáttum heilbrigðisþjónustunnar. Sveitarstjórnir víða um land hafa af því verulegar áhyggjur hve erfitt er að fá menntað hjúkrunarfólk til starfa, enda getur slíkt ástand raskað högum sveitarfélaga verulega og m.a. átt þátt í ákvörðunum fólks um búsetu. Verst er ástandið úti á landsbyggðinni. Þar standa sveitarstjórnarmenn nánast ráðþrota. Sumar sveitarstjórnir hafa reynt að fá til sín menntað hjúkrunarfólk með því að bjóða laun og fríðindi umfram kjarasamninga. Í því sambandi má nefna launaflokkahækkanir, staðaruppbætur, frían hita og rafmagn, gæslu barna og ferðakostnað.
Með þessum ráðstöfunum eru sveitarstjórnir annars vegar að freista þess að tryggja íbúum sveitarfélaganna þá heilbrigðisþjónustu sem nauðsynleg er, en hins vegar að taka á sig kostnað sem ríkissjóði ber í raun að greiða. Þessi kostnaður er ýmsum sveitarfélögum þungbær, ekki síst ef tekið er tillit til þess að víða eru sjúkrahús rekin með halla sem aftur bitnar þegar upp er staðið að meira eða minna leyti á sveitarfélögunum. Því er eðlilegt að þeirri spurningu sé beint til hæstv. heilbrrh. hvort ríkisstjórnin hafi uppi einhver áform um að gripið verði til ráðstafana til þess að bæta úr skorti á hjúkrunarfræðingum víða um land.