24.03.1988
Sameinað þing: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6093 í B-deild Alþingistíðinda. (4164)

378. mál, fæðingarorlof

Fyrirspyrjandi (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég get ekki stillt mig um að láta í ljós mjög eindregna ósk um það við hæstv. ráðherra að hann sjái til þess að þar sem skattgreiðsla hefur verið oftekin af þessum konum - það hljóta að vera fá tilfelli, það er ekki svo langt liðið á árið - þá sé það endurgreitt nú þegar en ekki látið bíða í hálft annað ár.