24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6117 í B-deild Alþingistíðinda. (4182)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Vegna orða hv. 2. þm. Austurl. skal eftirfarandi upplýst: Mælendaskrá eins og hún liggur fyrir og eins og hún hefur síðan verið rekin lá fyrir þegar ég tók við fundarstjórn fyrir tæpum klukkutíma svo að mér er ókunnugt um hvernig raðað var á mælendaskrá. Eina breytingin sem orðið hefur síðan sú mælendaskrá var lögð á borð mitt er sú að hæstv. iðnrh. óskaði eftir að fá að koma inn í umræðuna aftur. Ég hef talið að ráðherrar þeirra málaflokka sem til umræðu eru eigi að hafa nokkur forréttindi. Það er raunar rétt hjá hv. 2. þm. Austurl. að ráðherra skal ekki hafa lengri tíma en þingmenn í umræðu sem þessari, einungis frsm. skal hafa lengri tíma. Forseti játar því að hafa verið e.t.v, helst til liðlegur um ræðutíma hæstv. ráðherra og skal taka þeirri gagnrýni. En sú venja hefur skapast að ég tel að ráðherra gengi fyrir, hafi forgang umfram þingmenn til að svara fyrir sín mál.
Ég vona að hv. 2. þm. Austurl. sætti sig við þessar skýringar.