24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6122 í B-deild Alþingistíðinda. (4187)

371. mál, jöfnun á orkuverði

Forseti (Guðrún Helgadóttir):

Forseti vill upplýsa að það er ekkert sem mælir á móti því að hv. þm. taki til máls tvisvar í þessari umræðu. Forseti vill hins vegar benda á að það hefur verið siðvenja hér á hinu háa Alþingi að núv. ráðherra hafi nokkurn forgang umfram fyrrv. ráðherra.