13.04.1988
Neðri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6390 í B-deild Alþingistíðinda. (4382)

377. mál, uppboðsmarkaður á erlendum gjaldeyri

Flm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Hér hafa orðið þó nokkur veðrabrigði og menn áttu víst von á því að annað mál yrði hér til umræðu á undan. Ég ætla ekki að lengja það mál sem ég hafði í framsögu um þetta frv. en mun óska eftir því að því verði vísað til fjh.- og viðskn. Nd. að lokinni þessari umræðu.