18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6501 í B-deild Alþingistíðinda. (4503)
Töf á afgreiðslu rekstrarlána til bænda
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Menn hefur áður greint á um hverjir hafa borið ábyrgð á útlánum banka og ég ætla ekki að hefja þá umræðu hér af fullri hörku, en ég skildi ekki hv. 5. þm. Reykv. þegar það vafðist fyrir honum að viðskrh. væri yfirmaður bankanna í landinu.