18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6524 í B-deild Alþingistíðinda. (4527)
Óvissa um ráðningu kennara
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þau svör sem hann hefur veitt, sömuleiðis hv. þm. fyrir þátttöku í þessari umræðu. Það er ljóst að hún er fyllilega tímabær. Við stöndum frammi fyrir því fjórða eða fimmta árið í röð að um er að ræða óþolandi óvissu í kjaramálum kennara sem veldur erfiðleikum í skólastarfi, kemur niður á börnum, fjölskyldum og kennurum með tilfinnanlegum hætti.
Hæstv. fjmrh. bar fyrir sig samninga VMSÍ og Vinnuveitendasambands Íslands sem er, eins og hér hefur verið bent á, m.a. af hv. 5. þm. Reykv., í rauninni fráleitt að bera fyrir sig í þeirri stöðu sem nú er uppi þegar öll kjaraumræða er farin af stað á ný. Samningum hefur verið hafnað víða og nú er svo komið að m.a.s. Verslunarmannafélag Reykjavíkur er farið að gera kröfur um 42 000 kr. lágmarkslaun og hefðu fáir spáð því áður en þessi kjaradeila hófst að Verslunarmannafélag Reykjavíkur mundi beita sér af sérstakri hörku í henni.
Ríkisstjórnin situr í fílabeinsturni. Hún skynjar ekki aðstæðurnar, áttar sig ekki á því að hennar eigin sérfræðingar eru að spá stórfelldri gengislækkun, eru að spá aukinni verðbólgu. Viðskiptahallinn sem fjmrh. lét sína sérfræðinga spá fyrir nokkrum vikum er núna orðinn a.m.k. 50% hærri en hans sérfræðingar spáðu fyrir örfáum vikum. Það er einnig mjög alvarlegt í þessu máli varðandi kjaramál kennara, herra forseti, að svo virðist sem fjmrh. Alþfl. ætli ekki á neinn hátt að sýna meiri skilning á kjaramálum kennara og stöðu skólanna en við kynntumst í síðustu ríkisstjórn.
Lausnin á þessu máli getur ekki verið nema ein. Hún er sú að hæstv. fjmrh. geri kennurum alvörutilboð. Það er ekki alvörutilboð sem liggur fyrir gagnvart kennurum enn þá, tilboð þar sem fjmrn. gerir ekki ráð fyrir neinni upphafshækkun. Það er núll enn þá í því tilboði sem liggur frá fjmrn. gagnvart kennarasamtökunum og slíkt tilboð getur auðvitað ekki kallast alvörutilboð hvað þá heldur ef við skoðum hinar almennu efnahagskringumstæður í landinu.
Hæstv. menntmrh. hefur lagt fyrir þingið mörg frv. og sum góð um skólamál. Þau frv. gera enga stoð, duga ekki neitt nema tekið sé á kjaramálum kennara. Það er gagnslaust að flytja fín frv. um að lagfæra skólana og skipulag skólamála í landinu öðruvísi en að því fylgi marktækar tilraunir til að leysa kjaradeilur kennara og til þess að það verði gert þarf að koma í fjmrn. maður sem fjmrh. sem skilur að starf skólanna er líka undirstöðuatvinnuvegur ef við ætlum að lifa sem sjálfstæð menningarþjóð í þessu landi.