19.04.1988
Efri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6548 í B-deild Alþingistíðinda. (4554)
466. mál, ferðamál
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Það er ekkert nýtt að komi upp smámisskilningur á milli okkar þingmanna Vesturlands og maður hleypur ekkert sérstaklega upp á nef sér þó að það gerist. Ég kom hér upp og benti á að hér væri aðeins verið að framkvæma stefnu ríkisstjórnarinnar, það ætti að selja ríkisfyrirtæki, og það væru engin önnur rök fyrir þessari framkvæmd en þau. Ég lagðist ekki gegn frv. sem hér er til umfjöllunar, en ég varð ekki var við rökin og síst af öllu finn ég fyrir því að það séu nein sósíaldemókratísk rök að baki því að selja ríkisfyrirtæki. Ég auglýsi ákveðið eftir því að hv. 3. þm. Vesturl. útskýri fyrir okkur hvers vegna á að selja Ferðaskrifstofu ríkisins ef það liggur ekkert annað bak við en bara að selja fyrirtækið. Það eru ekki nein rök fyrir því að það eigi að breyta einu eða neinu. Er ríkisreksturinn svona miklu verri? Þetta hefur verið gott fyrirtæki og staðið sig vel í flestum greinum. Ég held að það væri fróðlegt að heyra frá formanni þingflokks íslenskra krata af hverju á að selja ríkisfyrirtæki sem gengur vel. (SvG: Þetta eru ekki kratar lengur.) Jú, ég dreg það ekki neitt í land að hér er við krata að eiga. (GA: Þeir geta verið óvirkir.)
En það er ekki nóg með að hv. þm. væri að gera okkur samþingsmönnum sínum úr Vesturlandi upp skoðanir heldur komst hann alla leið austur fyrir tjald, tengdi þessa umræðu á hv. Alþingi Íslendinga stöðunni fyrir austan. Hann nefndi að það mundi líkast til hvergi vera til ríkisferðaskrifstofa nema fyrir austan tjald. Þetta má vel vera. En beinlínis að nota það sem rök fyrir því að það skuli selja ágætt íslenskt ríkisfyrirtæki. Ég finn ekki neitt sem mælir með því. Og hann gat ekki setið á sér að skjóta pínulítið á stórfyrirtækið Intourist - heitir það ekki það, nefndi þingmaðurinn ekki það, rússneska einokunarfyrirtækið, ríkisfyrirtækið? - og það væri ekki virt að sama skapi. Ja, það var þörf á þessum upplýsingum í umræðum um sölu á hinu ágæta fyrirtæki, Ferðaskrifstofu ríkisins. Að hengja það saman við það sem er að gerast og hefur verið að gerast fyrir austan tjald. Ég skil það ekki. Ég á alveg ómögulegt með að skilja að það komi þessu máli nokkurn skapaðan hlut við hvort þetta eða hitt fyrirtækið í Sovét stendur sig vel eða illa eða hvort það sé í augum hv. þm. gott fyrirtæki eða vont.
En ég auglýsi sem sagt eftir hinni sósíaldemókratísku stefnu í sambandi við að selja Ferðaskrifstofu ríkisins. Hann lýsti stefnu sinni, sósíaldemókratinn, um að það ætti ekki að selja Sementsverksmiðju ríkisins. Ég tek að öllu leyti undir það með honum og þar slær okkar sósíaldemókratíska hjarta alveg saman. En mig langar til að fá skýringuna á hinu.