19.04.1988
Neðri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6639 í B-deild Alþingistíðinda. (4581)

46. mál, framtíðarskipan kennaramenntunar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þá tekur til máls hv. 10. þm. Reykn. Ég vil biðja hv. þm. velvirðingar á því að ég mun hafa breytt hér röð. Hv. 1. þm. Norðurl. v. var búinn að biðja mig að setja sig á mælendaskrá þegar umræðan byrjaði en ég þurfti að víkja úr salnum. Ég vona að þetta komi ekki að sök og biðst velvirðingar á því ef það hefur verið.