20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6669 í B-deild Alþingistíðinda. (4608)

Frumvarp til áfengislaga

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég vil mælast til þess að það verði þá boðaður nýr fundur kl. 18, að loknum þingflokksfundatíma, þannig að halda megi þessari umræðu áfram og koma þessu máli til nefndar. Ég hafði raunar minnst á það við virðulegan forseta og ég ítreka þá ósk hér með og veit að ég tala þar fyrir hönd a.m.k. allmargra hv. þm. í þessari deild.