20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6671 í B-deild Alþingistíðinda. (4616)
Frumvarp til áfengislaga
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég vil bara segja hv. þm. Svavari Gestssyni að mér er afar rótt í huga vegna þessa máls og það er enginn hugaræsingur yfir því. Þingflokksformaður hafði óskað eftir því við forseta að ef umræðu ekki lyki núna fyrir þingflokksfundartíma yrði umræðunni haldið áfram síðar í dag og reynt að koma þessu máli til nefndar, því að ég hygg að við séum öll sammála um að þetta mál beri að afgreiða hér á einn eða annan veg sem allra fyrst og kannski með sem allra minnstum hávaða. Þegar svo hæstv. forseti biður hæstv. landbrh. að gera hlé á máli sínu og segir síðan að fundi sé slitið, þá samrýmist þetta tvennt einfaldlega ekki vegna þess að ef forseti biður ræðumann um að gera hlé á máli sínu hlýtur forseti að fresta fundi en ekki slíta fundinum. Annars leiðir það af sjálfu að ræðumaður gerir ekki hlé á máli sínu, hann lýkur máli sínu og hann byrjar nýja ræðu næst þegar fundur er settur.
En ég hafði óskað eftir því við forseta að þetta yrði gert með þessum hætti. Forseti hefur auðvitað fullt leyfi og óskorað vald til að taka ekki hið minnsta tillit til slíkrar óskar. Þó hygg ég að það sé heldur óvenjulegt. Ýmsir hv. þm. hér hafa orðið til þess að taka undir þessar óskir mínar. Ég ítreka þá beiðni, þau vinsamlegu tilmæli, að hér verði boðað til nýs fundar eða fundi fram haldið - mér er ekki alveg ljóst á hvaða stigi þessi fundur er núna - kl. 18 og 1. umr. um þetta mál geti lokið þá. Það er að vísu ekkert stórmál eða sáluhjálparatriði en ég held að það væri samt að ýmsu leyti ákjósanlegt og gott ef það væri unnt.