26.04.1988
Efri deild: 79. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6781 í B-deild Alþingistíðinda. (4695)

468. mál, leigubifreiðar

Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Nokkurt óvissuástand hefur skapast um hverjar reglur gildi um það hverjir hafi heimild til að aka farþegum gegn gjaldi þar sem viðurkenndar fólksbifreiðastöðvar eru starfandi. Í hæstaréttardómi frá 10. júní 1987 kemst meiri hluti dómara að þeirri niðurstöðu að ekki sé sannað í því máli að viðkomandi aðili hafi gerst brotlegur við gildandi lagaákvæði um þetta efni, en í því er notað orðalagið „að stunda leiguakstur“ sem ekki er talið sannað að í því máli hafi verið fyrir hendi.

Minni hluti Hæstaréttar, 2 af 5, kemst að þeirri niðurstöðu að með ákvæði laganna sé lagt bann við því að aðrir bifreiðarstjórar aki farþegum gegn gjaldi en þeir sem aka frá viðurkenndri fólksbifreiðastöð. Ætla má að sú túlkun lagareglna hafi verið ríkjandi skilningur á tilgangi lagasetningarinnar um þetta efni undangengna áratugi.

Enn fremur má vísa til þess að í bréfi Umferðarráðs til samgrh. dags. 22. des. s.l. — en það bréf var einnig sent dómsmrn. — segir um notkun sendibifreiða til fólksflutninga:

„Umferðarráð telur að flestir þeir sendibílar sem notaðir hafa verið til almennra fólksflutninga hér á landi séu af öryggisástæðum alls kostar óhæfir til slíkra flutninga.“

Lagafrv. það sem hér liggur fyrir og er til umræðu er samið á vegum nefndar er samgrn. skipaði nýlega til að kanna skipulag leigubifreiðaaksturs í þéttbýli og koma með tillögur um framtíðarskipan þeirra mála. Nefndin telur að eigi vel að vera þurfi allítarlega könnun í ýmsum efnum að vera undanfari þeirrar tillögugerðar, en nokkuð brýnt sé að eyða því óvissuástandi sem ríkir um þetta efni og taka af tvímæli um lagareglur. Þess vegna er þetta frv. flutt þar sem skýrt er tekið fram í 2. mgr. 1. gr. laganna öllum er óheimill leiguakstur á fólksbifreiðum utan stöðvar eða frá stöð sem eigi er viðurkennd.

Ég tel ekki frekari ástæðu til að lengja mál mitt, herra forseti, en leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. samgn.