26.04.1988
Efri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6791 í B-deild Alþingistíðinda. (4729)

448. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Júlíus Sólnes:

Herra forseti. Ég þakka hv. 14. þm. Reykv. fyrir þessar skýringar og veit ég nú hvað er verið að ræða um og get tekið undir með hv. þm. að það er sjálfsagt að samþykkja frv. og styðja að þeirri breytingu sem þarna er talað um.

Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, benda á að þetta mál er ekki á dagskránni sem var dreift í upphafi fundar. Það er að vísu rétt að við samþykktum rétt áður að taka þetta á dagskrá með afbrigðum, en það lá ekki fyrir á þeirri dagskrá hvaða mál væri hér um að ræða.